Einstaklings ferðir 

Í nánast hverri viku fer fólk í aðgerðir á vegum HEI hjá Medical Park og LIV spítalanum . Sumir taka með sér fylgdarmanneskju til stuðnings, aðrir fara einir.

Þau sem vilja mögulega vera í slagtogi við aðra sem eru að fara á sama tíma geta spurt HEI hvort aðrir eru að fara á þeim tíma og ef svo er og ef gagnkvæmur áhugi er á slagtogi, annast HEI gjarnan milligöngu til að fólk geti eftir atvikum haft samskipti sína á milli í ferðinni.

Hópferðir

HEI býður stundum upp á hópferðir til Tyrklands með fararstjóra frá HEI.  

Næsta hópferð verður 23. Mars og heimferð 30. mars 2025.  

Ferð út 23. mars
KEF-CPH Icelandair FI 204, kl. 07:35
CPH-IST Turkish Airlines FI 7009 (TK 1782 ef keypt er hjá TE) kl. 14:10, lending 19:30. 

Ferð heim 30. mars
Turkish Airlines IST-LHR, FI7000 (TK 1979 ef keypt er hjá TE) kl. 7:50.
Icelandair LHR-KEF, FI451 kl. 13:05.
Lending í Keflavík kl. 15:15.

Sumir þurfa ekki að vera í heila viku og aðrir gætu þurft að vera lengur. Þau sem treysta sér að ferðast ein þurfa ekki endilega að fara út með sama flugi né heim með sama flugi.

Fararstjóri verður Guðjón Sigurbjartsson hjá HEI. Hann leitast við að styðja ferðafélaga eftir föngum varðandi ferðalagið, samskipti við spítalann og að kynna menningu Istanbúl.

Þóknun til HEI fyrir þátttöku í hópferð er 25.000 kr. fyrir „sjúkling“ en ókeypis fyrir fylgdarfólk.  Þeir sem vilja slást með í ferðina leitast við að bóka sína ferð á sama tíma og láta HEI vita af áhuga sínum á samfloti með tölvupósti á gudjon@hei.is.

Næstu hópferðir eftir mars verða kynntar síðar.