Heilbrigðisþjónusta erlendis · HEI Medical Travel

Byrjaðu samtalið hér heima.

HEI er íslenskur tengiliður við heilbrigðisþjónustu erlendis. Við hjálpum þér að kynna þér möguleikana, komast í samband við meðferðaraðila og undirbúa næstu skref.

Helvetic Clinics · Búdapest

UR Vistahermosa · Alicante

Medical Park · Istanbúl

Upplýsingar á íslensku

Samskipti við meðferðaraðila

Leiðsögn um ferðalagið

Þjónustan okkar

Hvað viltu kynna þér?

Veldu þjónustu til að fá yfirsýn yfir möguleika, ferlið og næstu skref.

01

Búdapest

Kynntu þér tannlækningar hjá Helvetic Clinics og hvernig þú óskar eftir mati og tilboði.

02

Istanbúl

Upplýsingar um hárígræðslu, mat sérfræðings og undirbúning meðferðar.

03

Istanbúl

Kynntu þér aðgerðir hjá Medical Park, ferlið og möguleika á samtali við læknisteymið.

04

Istanbúl

Meðferðarmöguleikar hjá Medical Park, kynning læknis og upplýsingar um eftirfylgni.

05

Alicante

Persónuleg leiðsögn um frjósemismeðferðir hjá UR Vistahermosa og næstu skref.

06

Danmörk

Kynntu þér hné- og mjaðmaskipti hjá CPH, greiðsluþátttöku og undirbúning ferðar.

Leiðsögn frá fyrstu fyrirspurn

Þú þarft ekki að vita allt fyrir fram.

Við byrjum á því sem þú vilt kanna. Síðan hjálpum við þér að afla upplýsinga og átta þig á ferlinu áður en þú tekur ákvörðun.

01

Við förum yfir spurningarnar

Segðu okkur hvaða þjónustu þú vilt kynna þér. Við útskýrum ferlið og leiðbeinum um fyrstu skrefin.

02

Þú færð samband við meðferðaraðila

Fyrir einstaklingsbundið mat þarf viðeigandi gögn. Læknisteymi meðferðaraðilans metur hvaða úrræði koma til greina.

03

Þú undirbýrð næstu skref

Farið er yfir áætlun, tilboð, ferðalag og eftirfylgni. Fáðu mikilvægu atriðin staðfest áður en þú bókar.

Fólkið á bak við HEI

Persónulegt samband hér heima.

Hjá HEI hefurðu íslenskan tengilið til að ræða spurningar og undirbúning. Við höfum milligöngu um samskipti við samstarfsaðila okkar erlendis.

Læknisfræðilegt mat, meðferð og klínískar leiðbeiningar eru í höndum meðferðaraðilans.

Guðjón Sigurbjartsson

Framkvæmdastjóri HEI Medical Travel

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir

Frjósemismeðferðir hjá HEI

Gott að vita

Fyrstu spurningarnar.

Skoðaðu þjónustuna sem þú hefur áhuga á eða hafðu samband við HEI. Þú þarft ekki að hafa ákveðið meðferð til að óska eftir upplýsingum.

HEI veitir upplýsingar og leiðsögn, hefur milligöngu um samskipti við samstarfsaðila og hjálpar þér að átta þig á undirbúningi ferðar. Fyrirkomulagið fer eftir þjónustunni.

Læknisteymi meðferðaraðilans metur þitt tilvik út frá viðeigandi upplýsingum og rannsóknum. HEI leiðbeinir þér um hvernig þú óskar eftir slíku mati.

Byrjum á samtali.

Segðu okkur hvað þú vilt kynna þér. Við hjálpum þér að átta þig á næstu skrefum.