Viðtöl við sérfræðinga Vistahermosa
 
Bókaðu ókeypis einkaviðtal með sérfræðingum Vistahermosa frá Alicante á Spáni, sem verða á Íslandi dagana 2.–3. október 2026.
Í viðtalinu færðu tækifæri til að ræða þína stöðu, kynna þér hvaða möguleikar eru í boði og fá svör við spurningum um frjósemismeðferðir og ferlið hjá Vistahermosa — áður en þú tekur ákvörðun um næstu skref.
 
Viðtalið er án endurgjalds og felur ekki í sér neina skuldbindingu um áframhaldandi meðferð.
 
Um Vistahermosa
Vistahermosa er hluti af UR International, einum umfangsmesta sérfræðihópi Spánar á sviði frjósemismeðferða. Innan hópsins eru framkvæmdar yfir 11.000 frjósemismeðferðir á ári og lögð er áhersla á sérfræðiþekkingu, einstaklingsmiðaða nálgun og háan árangur.
Vistahermosa starfar innan HLA Vistahermosa sjúkrahússins í Alicante, þar sem fjölbreytt teymi sérfræðinga kemur að greiningu og meðferð, meðal annars á sviði kvensjúkdómalækninga, fósturfræði og erfðafræði.
 
 
Við komu tekur fulltrúi HEI á móti þér og vísar þér inn. Einkakynningarviðtalið sjálft er með lækni og stjórnanda hjá Vistahermosa og fer fram í næði.
 
Takmarkaður fjöldi ókeypis einkaviðtala er í boði 2.–3. október.
 
Bókaðu ókeypis einkaviðtal hér neðar.
 
Staður:
Elliðastöð
Rafstöðvarvegur 6
110 Reykjavík