Helvetic Clinics í Búdapest

Tannlækningar í hjarta Búdapest

Helvetic Clinics er tannlæknamiðstöð við Révay utca 12 í miðborg Búdapest. Þar koma tannlæknar með ólík áherslusvið saman undir einu þaki, ásamt tannsmíðaverkstæði og hóteli í sömu byggingu.

Hvort sem þú ert að kynna þér tannplanta, krónur eða umfangsmeiri tannviðgerðir geturðu byrjað hjá HEI og fengið leiðsögn um fyrstu skrefin.

Frá fyrstu skoðun að skýrri áætlun

Meðferð hefst á mati tannlæknis og þeim rannsóknum sem þarf í þínu tilviki. Í kjölfarið færðu einstaklingsbundna meðferðaráætlun og sundurliðað tilboð sem sýnir fyrirhugaða meðferð og kostnað.

Hjá Helvetic starfa meðal annars tannlæknar sem sinna tannplöntum, tannholdi og tannviðgerðum. Möguleikar, efnisval, fjöldi heimsókna og eftirfylgni eru rædd við þig áður en þú ákveður næstu skref.

Tannplantar / implantar →   Krónur og brýr →

Persónuleg leiðsögn og þægileg dvöl

HEI er íslenskur tengiliður við Helvetic Clinics og hjálpar þér að afla upplýsinga um meðferð, verð og ferðalag.

Hjá Helvetic er líka íslenskumælandi ráðgjafi.

Klíníkin er í sömu byggingu og 12 Révay Hotel. Þú getur því kynnt þér gistingu á staðnum eða önnur hótel í nágrenninu og skipulagt dvölina út frá meðferðaráætluninni.

Gisting í Búdapest →   Hópferðir →

Óska eftir samtali við HEI →

Framhlið húss Helvetic Clinics við Révay utca 12 í Búdapest
Tannlæknir og aðstoðarfólk við störf hjá Helvetic Clinics
Bjart biðrými hjá Helvetic Clinics í Búdapest

Helvetic Clinics í Búdapest