Tannlækningar í Búdapest

Tannviðgerðir byrja á skýrri áætlun

Kynntu þér tannlækningar hjá Helvetic Clinics með aðstoð HEI. Við hjálpum þér að taka fyrsta skrefið og fá skýrari mynd af meðferð, kostnaði og ferðalaginu.

Tannlæknastofa á 5. hæð Helvetic Clinics í Búdapest.

Byrjaðu samtalið hér heima

Fáðu yfirsýn áður en þú ákveður

Tannplöntur

Krónur og brýr

Almennar tannlækningar

Þegar tannviðgerðir eru umfangsmiklar skiptir máli að skilja hvað þarf að gera, hvað það kostar og hvernig meðferðin fellur að ferðalaginu.

Helvetic Clinics í Búdapest býður meðal annars tannplöntur, krónur og brýr. Tannlæknar stofunnar meta þörfina og leggja fram meðferðaráætlun. HEI er íslenski tengiliðurinn þinn við að kanna þessa leið.

Frá fyrirspurn að meðferðaráætlun

Hvernig gengur þetta fyrir sig?

01 / SAMTAL

Við förum yfir spurningarnar

Hafðu samband við HEI og segðu okkur hvað þú vilt kanna. Við förum yfir ferlið og hvaða upplýsingar gagnast fyrir næsta skref.

02 / SKOÐUN OG ÁÆTLUN

Þú færð mat tannlæknis

Helvetic metur meðferðarþörfina við skoðun. Meðferðaráætlun og kostnaðarmat hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun.

03 / FERÐ OG MEÐFERÐ

Ferðin tekur mið af þér

Farið er yfir tíma á stofunni, gistingu og ferðatilhögun. Spyrðu okkur um næstu hópferðir eða ferð á eigin vegum.

Úr aðstöðu Helvetic Clinics.

Tannlæknamiðstöð í hjarta Búdapest

Helvetic Clinics er við Révay utca 12 í miðborginni. Á staðnum eru tannlæknamiðstöð, myndgreining og tannsmíðaverkstæði. Hótelið Révay 12 er í sömu byggingu.

Gott að vita áður en þú ferð

Verð, ferðalag og næstu skref

Skoðaðu verðupplýsingar og kynntu þér mögulega kostnaðarþátttöku. Fáðu einstaklingsbundna meðferðaráætlun og skýra sundurliðun kostnaðar áður en þú ákveður þig.

Persónulegt samband við HEI

Við byrjum á samtali

Þú þarft ekki að vera búinn að ákveða þig. Hafðu samband og fáðu svör við fyrstu spurningunum um tannlækningar í Búdapest.

Guðjón Sigurbjartsson
Framkvæmdastjóri HEI Medical Travel

FYRSTA SKREFIÐ

Óska eftir samtali um tannlækningar

Fylltu út formið hér að neðan og segðu okkur hvað þú vilt kynna þér. Við svörum yfirleitt innan 4 daga.

Ég veiti HEI MEDICAL TRAVEL skýrt samþykki mitt til að vinna persónuupplýsingar mínar, þar með taldar viðeigandi heilsufarsupplýsingar, og til að miðla þeim til viðeigandi heilbrigðisþjónustuaðila, sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, ferðþjónustuaðila og annarra þjónustusamstarfsaðila, eftir því sem nauðsynlegt er til að skipuleggja heilbrigðisþjónustu, ferðalög og tengda þjónustu fyrir mína hönd. Mér er ljóst að persónuupplýsingar mínar verða unnar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679, almennu persónuverndarreglugerðina. Mér er ljóst að ég get afturkallað samþykki mitt hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu sem byggðist á samþykkinu áður en það var afturkallað./ I give HEI MEDICAL TRAVEL my explicit consent to process my personal data, including relevant health-related information, and to share it with relevant healthcare providers, hospitals, clinics, travel providers and other service partners where necessary to arrange healthcare, travel and related services on my behalf. I understand that my personal data will be processed in accordance with Icelandic Act No. 90/2018 on Data Protection and the Processing of Personal Data and Regulation (EU) 2016/679, the General Data Protection Regulation. I understand that I may withdraw my consent at any time, without affecting the lawfulness of processing based on consent before its withdrawal.
Ég samþykki að HEI MEDICAL TRAVEL sendi mér endrum og sinnum kynningarefni, fréttir og tilboð um nýjungar í þeirri þjónustu sem ég hef spurt um, sem og aðra heilbrigðis- og ferðatengda þjónustu sem kann að höfða til mín. Mér er ljóst að ég get afturkallað samþykki mitt hvenær sem er. / I agree that HEI MEDICAL TRAVEL may occasionally send me marketing material, news and offers regarding developments in the services I have enquired about, as well as other healthcare and travel-related services that may be of interest to me. I understand that I may withdraw my consent at any time.

Gott að vita

Algengar spurningar

Þú getur byrjað á að skoða verðlistann og hafa samband við HEI. Endanleg meðferðaráætlun og kostnaðarmat byggjast á skoðun tannlæknis og þeim rannsóknum sem þarf.

Það fer eftir meðferðaráætluninni. Fáðu upplýsingar um fjölda heimsókna, tíma á milli þeirra og dvalarlengd áður en þú bókar ferðina.

Það þarf að kanna sérstaklega hvort og að hvaða marki kostnaður fæst endurgreiddur í þínu tilviki. Sjá upplýsingar um kostnaðarþátttöku og fáðu staðfestingu hjá viðeigandi aðila áður en þú gerir ráð fyrir endurgreiðslu.

Já. Á vef Helvetic er einnig boðið upp á komur utan hópferða. Hafa þarf samband fyrirfram til að samræma tíma á stofunni og gistingu.

Fáðu skýrar leiðbeiningar frá tannlækninum um eftirmeðferð, eftirlit og viðbrögð ef spurningar eða vandamál koma upp eftir heimkomu. Ræddu einnig ábyrgðarskilmála áður en meðferð hefst.

Algengar spurningar

Þú getur byrjað á að skoða verðlistann og hafa samband við HEI. Endanleg meðferðaráætlun og kostnaðarmat byggjast á skoðun tannlæknis og þeim rannsóknum sem þarf.

Það fer eftir meðferðaráætluninni. Fáðu upplýsingar um fjölda heimsókna, tíma á milli þeirra og dvalarlengd áður en þú bókar ferðina.

Það þarf að kanna sérstaklega hvort og að hvaða marki kostnaður fæst endurgreiddur í þínu tilviki. Sjá upplýsingar um kostnaðarþátttöku og fáðu staðfestingu hjá viðeigandi aðila áður en þú gerir ráð fyrir endurgreiðslu.

Já. Á vef Helvetic er einnig boðið upp á komur utan hópferða. Hafa þarf samband fyrirfram til að samræma tíma á stofunni og gistingu.

Fáðu skýrar leiðbeiningar frá tannlækninum um eftirmeðferð, eftirlit og viðbrögð ef spurningar eða vandamál koma upp eftir heimkomu. Ræddu einnig ábyrgðarskilmála áður en meðferð hefst.