Hártilflutningur (e: Hairtransplant)
Hárlos er algengt vandamál sérstaklega hjá körlum sem vill ágerast með árunum. Hárlos kemur fyrst fram sem hækkun kollvika það er hárlínu á enni. Aðal orsakir eru erfðatengdar hjá körlum en frekar hormónatruflanir og sjúkdómar hjá konum. Hárlos á sér margar skýringar.
Það að missa 50 til 100 hársekki á dag er eðlilegt lífeðlisfræðilegt ferli. Þú þarft frekar að hafa áhyggjur ef meira en 100 hársekkir tapast á hverjum degi eða ef nýtt hár er veikbyggt eða þunnt. Eins og allar lifandi verur fæðist hárið okkar, vex og deyr (tapast) að lokum.
Um það bil 90% af hárinu í hársverðinum okkar er á vaxtarstigi. Þetta tímabil varir í 1 til 6 ár. Hár helst í fullvöxnu vaxtarlausu ástandi í nokkur ár og á því tímabili tapast nokkuð af hári. Það er eðlilegt náttúrulegt ferli að allt hár tapast á 3 til 4 árum og nýtt hár vex í staðinn. Árstíðir hafa veruleg áhrif á þetta náttúrulega hárlos.
Heilsufars spurningaform
Til að meta stöðuna á hárinu, heilsu þína og staðfesta verð þarf sjúkrahúsið upplýsingar um heilsufar og myndir af höfðinu, sjá form hér.
Svörin fara beint á Liv sjúkrahúsið með afriti á HEI. Eftir nokkra daga kemur svar frá Liv til HEI sem sendir þér póst varðandi niðurstöðurnar.
Hvað er hártilflutningur?
Hárígræðsla eða hártilflutningur er það að færa til hárserki frá þéttvöxnu svæði aftan á höfði, þar sem nóg er af hári og planta því á svæði framar og ofan á höfði, þar sem hár vantar.
Hártilflutnings aðferðir
LIV sjúkrahúsið beitir DHI aðferðinni sem er talin best.
Hárígræðslupakkar
Við bjóðum í samstarfi við LIV sjúkraúsin pakkaverð í hártilflugning, sem innifelur akstur og hótel. Hafðu gjarnan samband og fáðu nánari upplýsingar.
Lýsing á ferlinu og hvernig það gengur fyrir sig
Það þarf að lágmarki 2 heila daga í hárflutnings ferlið.
Þegar þú kemur til Tyrklands ferðu á móttökuskrifstofuna á IST flugvellinum.
Þau kalla til bílstjóra sem mun aka þér á fyrir fram bókað hótel. Aksturinn er innifalinn í pakkaverði.
Tengiliður mun upplýsa þig um dag og tíma fyrir aðgerðina og hvenær þú verður sóttur/sótt á hótelið.
1. dagur: Akstur frá hóteli á spítala – Aðgerð – Akstur á hótel: Það verður náð í þig á hótelið á tilsettum tíma og ekið með þig á spítalann til móts við hártilflutnings teymið okkar.
Líkamsrannsókn og nauðsynlegar blóðprufur. Mælt er með því að þú fáir þér morgunverð fyrir aðgerðina á hótelinu eða frítt á spítalanum. Eftir mat blóðprufu og líkamsskoðun, byrjar hártilflutnings ferlið með staðdeyfingu og svo aðgerð. Eftir það er þér ekið á hótelið og þú upplýst/-ur um áætlun fyrir næsta dag.
2. dagur: Sáraumbúðir fjarlægðar. Skolun: Þú færð nauðsynleg lyf og upplýsingar um hvers má vænta á næstu daga eftir tilflutninginn.
3. dagur: Akstur á flugvöll.
Athugaðu að þessi áætlun gæti breyst eftir komu og brottfarar tíma þínum.
Ef þú velur að fá einnig stofnfrumumeðferð bætist að lágmarki 1, helst 2 dagar við ferlið.
Þú getur að sjálfsögðu verið fleiri daga á svæðinu ef þú vilt á eigin vegum, þess vegna á sama hóteli áfram.
Aðvaranir vegna hártilflutnings
Nokkur ráð fyrir þig varðandi aðgerðina, vinsamlegast taktu eftir:
- Ekki þvo hárið kvöldið eða morguninn fyrir aðgerð.
- Ekki klippa þig stuttu fyrir aðgerð. Við gerum það.
- Fáðu þér að borða fyrir komu.
- Vinsamlegast mættu fyrir bókaðan tíma. Gerðu ráð fyrir að verja deginum með okkur. Við útvegum þér það sem þú þarft yfir daginn.
- Vertu í þægilegum fötum og skyrtu sem er frá hneppt að framan. Ekki vera í bol né öðrum klæðnaði sem þarf að toga yfir höfuð.
