Magaermi er algengasta þyngdarlækkandi skurðaðgerðin. 

Hún er minna inngrip í líkamann en hjáveituaðgerð og líkur á meltingartruflunum minni. Ermin hentar best:

  • Einstaklingum með BMI yfir 32.
  • Ungum konum í yfirvigt sem gætu viljað eignast börn síðar.
  • Einstaklingum með alvarlega samgróninga (peritoneal) eftir aðgerðir á kviði.
  • Einstaklingum sem óska þess að léttast án þess að gera stórar breytingar á meltingarveginum.

Aðgerðin felur í sér að minnka magann um nálægt 2/3.  Ekki er hreyft við þörmunum eins og gert er í hjáveituaðgerð. Eftir aðgerðina kemst minna í magann,  maður finnur fyrr fyrir seddu og matarlystin minnkar.

Maturinn fer einnig hraðar niður í þarmana. Þetta hefur áhrif á hormónin í þörmum, sem hefur meðal annars áhrif á sykursýki í hagstæða átt. Það svæði magans sem framleiðir sultarhormónið Ghrelin er fjarlægt að mestu, sem stuðlar að minni matarlyst.

Sjá myndband hér