Einstaklings ferðir 

Í nánast hverri viku fer fólk í aðgerðir á vegum HEI hjá Medical Park og LIV spítalanum . Sumir taka með sér fylgdarmanneskju til stuðnings, aðrir fara einir.

Þau sem vilja mögulega vera í slagtogi við aðra sem eru að fara á sama tíma geta spurt HEI hvort aðrir eru að fara á þeim tíma og ef svo er og ef gagnkvæmur áhugi er á slagtogi, annast HEI gjarnan milligöngu til að fólk geti eftir atvikum haft samskipti sína á milli í ferðinni.

Hópferðir með fararstjóra frá HEI

Icelandair hefur beint flug til Istanbul í september 2025.
Við nýtum okkur þetta. 

Næsta hópferð til Istanbul: 
Beint flug með Icelandiair KEF-IST sunnudaginn 28. september 2025
og heim viku síðar sunnudaginn 6. október 2025.  

Það skiptir ekki máli í hvaða aðgerð fólk er að fara það getur komið í þessa ferð.
Sumir þurfa ekki að vera í heila viku og aðrir þurfa að vera lengur.

Fararstjóri verður Guðjón Sigurbjartsson hjá HEI.
Fararstjóri leitast við að styðja ferðafélaga eftir föngum varðandi ferðalagið, samskipti við spítalann og fyrir þau sem vilja, að kynna menningu Istanbúl.

Þóknun til HEI fyrir þátttöku í hópferð er 20.000 kr. fyrir hvern „sjúkling“ en ókeypis fyrir fylgdarfólk. 

Þeir sem vilja slást með í ferðina leitast við að bóka sína ferð á sama tíma og láta HEI vita af áhuga sínum á samfloti með tölvupósti á gudjon@hei.is.

Næstu hópferðir verða kynntar síðar.