Medical Park (MP) og LIV er keðja nýtímalegra alþjóðlegra sjúkrahúsa í Tyrklandi.  Sjúkrahúsin í Istanbul liggja best við flugi frá Evrópu og Icelandair býður frá hausti 2025 beint flug þangað.

Gott er að koma út um helgi eða snemma viku og fara þá í sumum tilvikum beint á sjúkrahúsið.

Medical Park og LIV eru með móttökuskrifstofu á hinum nýja og flotta IST flugvelli í Istanbul. Fólk fer á skrifstofuna sem skipuleggur akstur inn í bæinn og kallar til bílstjóra.

Eftir að aðgerðum er lokið er fólki ekið á hótel þar sem það dvelur í nokkra daga eftir atvikum, áður en haldið er heim. Auðvitað má vera lengur og koma áður en farið er í aðgerðir ef fólk vill, til að skoða sig um.  

Icelandair býður frá og með hausti 2025 beint flug til Istanbul. Einnig má leita að flugi með leitarvélum til dæmis dohop.is og Google flights.

Afkastageta MP og LIV sjúkrahúsanna er mikil og yfirleitt er hægt að komast fljótt að í aðgerðir. Þegar flugmiði hefur verið keyptur þarf að senda hann til HEI sem sendi hann á MP / LIV sem staðfestingu á pöntun.

Enskumælandi sjúklingatengiliður setur sig í samband við fólk fyrir ferðina út og er í sambandi við fólk úti og leiðir það í gegnum ferlið.  Þau nota WhatsApp símaappið og óska þess að fólk noti það app.

Gott getur verið að hafa fylgdarmanneskju með til aðstoðar, sérstaklega ef tungumálakunnátta er ekki næg og um erfiða aðgerð er að ræða. 

Eftir að fólk hefur jafnað sig eftir aðgerð á hóteli, ekur bílstjóri á vegum MP / LIV fólki til baka á flugvöllinn í tíma fyrir flugið heim á leið.