Aðferðir við hárígræðslu
Almennt
Hársekkir eða húð með hársekkjum eru teknir þar sem nóg er af hári yfirleitt aftan af höfi, og plantað þar sem vantar hár vegna hárloss, yfirleitt framar og ofar á höfðin. Hægt er að taka hár af bringu og víðar af líkamanum en það er almennt séð síðri aðferð en að flytja höfuðhár til.
Staðdeyfilngu er beitt á gjafa- og viðtökusvæði. Saumar eru óþarfir. Sjáanleg ör verða lítil sem engin.
Varast er að taka of mikið af hári frá hverju svæði til að ekki verði eftir of gisið svæði.
Medical Park miðar við að byrja hárígræðslu ekki fyrr en í fyrsta lagi við 22 ára aldur. Ígræðsla er algengust á miðjum aldri og auðveldlega má flytja hár jafnvel á 80 til 90 ára.
Konur þjást yfrileitt ekki af hárlosi með sama hætti og karlar. Konur upplifa aðra gerð af hárlosi sem yfirleitt er hægt að stöðva og snúa við í 80-90% tilfella án ígræðslu. Ef aðrar hármeðferðir hjálpa ekki er hægt að flytja hár hjá konum.
Fyrir aðgerðina eru gerðar blóðprufur til að sjá hvort um er að ræða sjúkdóma yfirleitt á komudegi.
Svæðið sem meðhöndla á er því næst staðdeyft.
Þá er byrjað að taka ígræðslu og færa hana til.
Ein aðferðin kallast FUE “Folicular Unit Extraction”.
Aðrar kallast SAFÍR enn aðrar DHI.
Safír aðferðin gengur út á að taka hvern hárserk fyrir sig, stinga göt þar sem þeir eita að koma og setja hárserkina í þau einn af öðrum.
DHI notar sérstakt pennalíkt tæki til að setja ígræðslurnar á sinn stað undir húðinni.
Á milli þess sem ígræðslum er safnað og þær græddar í er sjúklingum boðið upp á hádegismat. Þeir geta einnig fengið sér morgunmat fyrir aðgerðina.
Þegar ígræðslu er lokið er búið um sárið eftir það er fyrstu lotu lokið. Þetta tekur venjulega 6-8 klukkustundir.
DHI – Direct Hair Implantation
Þessi aðferð er líka þekkt sem aðferðin þar sem hárið er ekki klippt eða rakað nema að hluta til, fyrir aðgerð. Markmiðið er að ásýndin breytist sem minnst við aðgerðina.
Hársekkir eru dregnir úr hársverðinum einn í einu með nákvæmu pennalíku áhaldi sem er með oddmjórri titanium húðaðri “nál” sem er um í 1 mm í þvermál og tekur því lítið annað en nákvæmlega þann hársekk sem flytja á.
Hársekkjunum er síðan stungið niður þar sem hár vantar. Við ísetninguna má stjórna halla og staðsetningu nákvæmlega. Þetta tryggir allt að því 100% náttúrulegt útlit og betri nýtni hárserkja.
Lífslíkur hársekkja eru 90%+ og algert gagnsæi hvað varðar fjöldann.
Aðgerðin er framkvæmd af lækni ásamt með aðstoðarfólki.
Það tekur lengri tíma að flytja hársekki með þessari aðferð en hinum en nýtni hársekkja og útlitslegur árangur kann að vera betri.
Medical Park getur flutt allt að 3000-3500 hársekki með DHI meðferðinni á einum degi (um það bil 8 klst).
Á milli þess sem ígræðslum er safnað og þær græddar í er sjúklingum boðið upp á hádegismat. Þeir geta einnig fengið sér morgunmat fyrir aðgerðina.
Þegar ígræðslu er lokið er búið um sárið eftir það er fyrstu lotu lokið. Þetta tekur venjulega 6-8 klukkustundir.
FUE – Follicular Unit Extraction
Hársekkir eru teknir einn í einu af gjafasvæði með sérstöku áhaldi.
Hársekkjunum er síðan plantað í svæði þar sem hár vantar vegna hárloss.
Helstu kostir aðferðanna:
- Þarf ekki að sauma
- Engin sjáanleg ör
- Staðdeyfing tryggir sársaukalitla aðgerð
- Batatíminn er mjög stuttur
- Sjúklingurinn er strax eftir aðgerð tilbúinn út í daginn
- Eðlilegt, náttúrulegt útlit
- Með sama hætti má græða í yfirvaraskegg, skegg og augabrúnir
- Ekkert tap tilfinningar á gjafasvæðum.
Sjúklingur þarf að dvelja í að minnsta kosti 2 nætur á staðnum í kringum aðgerðina. Unnið er að aðgerðinni, undirbúningi, framkvæmd og umbúðaskipti, í þrjá daga.
Hárígræðsluaðgerðin sjálf tekur 6-8 klst. Ekki er þörf á að fasta fyrir þetta ferli.
Hárflutningurinn er gerður í staðdeyfingu, þú finnur ekki fyrir neinum sársauka.
Sjúklingur ætti ekki að neyta áfengis, kaffis, aspiríns, warfaríns nema í samráði við lækni ef við á né vítamíns í þrjá daga fyrir aðgerðina.
Sjúklingur getur snúið sér til daglegs lífs strax eftir meðferðina.
Hárvöxtur eftir ígræðslu
Ígræddu hársekkirnir vaxa fyrst soldið og detta síðan af á lífsferli sínum. Um sex mánuðum eftir hárígræðsluna í byrjar hárið að vaxa þykkt og þétt á svæðinu með meiri styrk og þéttleika.
7 dögum eftir hárígræðslu hjá körlum sést móta fyrir fyrstu hárunum. Þeir sem eru önnum kafnir geta snúið aftur til skrifstofuvinnu innan tveggja daga eftir aðgerðina og haldið lífi sínu áfram eins og venjulega.
Eftir tvo til þrjá mánuði dettur ígrædda hárið af staðnum og nýtt og þykkara hár byrjar að vaxa. Þetta hár er yfirleitt stabílt og vex eins og venjulegt hár.