Hentar þyngdarlækkandi skurðaðgerð fyrir mig?
Ef þú ert að íhuga þyngdar lækkandi aðgerð (ÞLA) ættir þú að velta fyrir þér hvort þú ert búin(n) að reyna nægilega vel að ná árangri með bættu mataræði og aukinni hreyfingu. Ef þú telur svo vera og að þú munir ekki ná lengra með þeim hætti gæti ÞLA hentað þér.
ÞLA henta helst fólki sem er of þungt miðað við hæð, það er með hátt BMI.
BMI, það er Body Mass Index er mikið notuð aðferð til að meta hvort þyngd fólks er heppileg miðað við hæð og fleira, eða hvort um of- eða vanþyngd er að ræða.
- BMI < 18,5 Of létt(ur)
- BMI = 18,5-24,9 Eðlileg þyngd
- BMI = 25,0-29,9 Of þung(ur)
- BMI> 30,0 Offita
Þetta eru aðeins viðmiðunarreglur. Læknir þarf að meta hvern sjúklings með hliðsjón af heilsufarsástandi og sögu um þyngdarvandamál áður en skurðaðgerð er ákveðin.