Það að fara í þyngdarlækkandi skurðaðgerð (ÞLS) / efnaskiptaaðgerð breytt rýmsu fyrir fólk persónulega og félagslega. Offita safar í mörgum tilvikum af viðleitni okkar til að bæta okkur eitthvað upp með því að gæða okkur á mat oft aren gott er fyrir okkur, sem endar hjá mörgum, í offitu. Eftir aðgerð minnka möguleikarnir á þessari nautn, þó andlega þörfin kunni að vera til staðar áfram. Það að borða er líka félagsleg athöfn sem fólk getur saknað verulega. Þetta leiðir í sumum tilvikum til þess að fólk verður óánægt og sumir finna til þunglyndis. Þá sækja sumir í að fitna aftur eftir að hafa léttst verulega fyrst eftir aðgerð.
Til að vinna gegn þessu þarf meðal annars að huga að andlega þættingum.
Dr. Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir, félagsráðgjafi er sérhæfð í þessu verkefni. Hún tekur fólk í viðtalsráðgjöf sem miðar að því að dýpka skilning á offitu sem sjúkdómi og hvernig gott er að taka á því persónulega og félagslega. Hún hefur lengst af starfað við félagsráðgjöf og stundað rannsóknir. Eftir hana hafa birst greinar í vísindatímaritum. Sveinbjörg leggur mikla áherslu á heildarsýn á aðstæður einstaklinga, hjóna og fjölskyldna, samspil þeirra innbyrðis og í umhverfi sínu.
HEI býður þeim sem farið hafa í ÞLS frítt prufuviðtal hjá Dr. Sveinbjörgu. Markmið með viðtalsmeðferð og þjálfun er að:
- Auka skilning á venjum og hvaða áhrif þær hafa á okkur.
- Átta sig á hvort og hvaða breytingar þarf mögulega að gera til þess að ná betra jafnvægi og til að draga úr álagi og streitu sem fylgir ÞLS.
- Að skilgreina, skilja, efla sig og draga úr áhrifum hindrana.
- Finna sín mörk og læra að setja öðrum mörk.
- Koma auga á tækifæri við breyttar aðstæður.
Panta má fría viðtalið með því að senda póst á Sveinbjörgu Júlíu og með því að hringja í hana í síma 866 2296. Eftir prufuviðtalið ákveður hver og einn fyrir sig um framhaldið.