Verð frjósemimeðferða
Verðin hjá Vistahermosa eru almennt lægri en fyrir samsvarandi meðferðir hér á landi.
Unnið er samkvæmt verðlista. Hann er hins vegar nokkuð fljókinn. Þess vegna er raunhæfast að verðin komi fram eftir samtöl við starfsfólk HEI og Vistahermosta.
Greiðslur og endurgreiðslur
Greitt er fyrir meðferðirnar beint til Vistahermosa.
Sjúkratryggingarm Íslands taka þátt kostnaði við frjósemimeðferðir erlendis samkvæmt lögum og reglugerðum.
Sjúkratryggður einstaklingur á rétt á sækja sér heilbrigðisþjónustu þar sem hann kýs sjálfur innan EES svæðisins, en endurgreiðsla er háð ákveðnum skilyrðum.
Megin línan er að Sjúkratryggingar endurgreiða hluta af kostnaði erlendis eins og um væri að ræða heilbrigðisþjónustu hérlendis ef þjónustan er sambærileg við þjónustuna hér á landi. Frá þessu eru þó ýmsar undantekningar.
Greiðsluþátttaka vegna IVF, tæknifrjóvgunar erlendis er sú sama og hér á landi, samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga en aldrei hærra en sem nemur raunkostnaði. Ef kostnaðurinn úti er hærri en gjaldskrá Sjúkratrygginga fellur umframkostnaður á einstaklinginn.
Sjá einnig hér um fjárhagsaðstoð vegna frjósemivandamála, neðarlega á síðunni.
Engin greiðsluþátttaka er varðandi ferðakostnað né uppihald.
Framvísa þarf greiddum reikningum til Sjúkratrygginga og óska greiðsluþátttöku.
Hægt er að kynna sér reglur Sjúkratrygginga Íslands nánar á island.is og hjá Sjúkratryggingum.
Í sumum tilvikum fæst skattaafsláttur vegna heilbrigðisútgjalda sem þessara. Þá þarf að gefa upp kostnaðinn í skattaskýrslum og hafa tiltæk gögn um kostnaðinn til að geta fært sönnur á hann.
Sum stéttarfélög taka þátt í heilbrigðiskostnaði félaga. Hver og einn þarf að sækja um greiðsluþátttöku til síns stéttarfélags.
Þegar þið hafið fyllt út eyðublaðið og hafið öll gögn tilbúin þá sendiði gögnin ásamt umsókninni á international@sjukra.is
HEI leiðbeinir um ferlið, pantar í aðgerð og aðra tengda þjónustu og aðstoðar eftir föngum. Ekki þarf að greiða HEI fyrir þá þjónustu.